Mín sýn á valdatíð sjálfstæðisflokksins

Hugsið ykkur tímalínuna 18ár. Reynið að pressa hana saman í huga ykkar niður í 2 daga. Semsagt föstudags og laugardagskvöld. Föstudagurinn er fyrri níu árin og laugardagurinn er seinni níu árin. Nú skuluð þið ímynda ykkur að á föstudagskvöldinu sé haldið partí og það er svo gaman að partíið hættir ekki heldur dregst það á langinn og færist yfir á laugardagskvöldið líka.

Fólkið sem mætti í þetta partí fékk að kjósa sér gestgjafa. Það virtist vera alvega sama hverja folk kaus. Alltaf náði Sjálfstæðisflokkurinn að mynda meirihluta. Þá urðu alltaf einhverjir að vera í minnihluta, höfðu smá áhrif en ekki mikil, en alltaf vöruðu þeir meirihlutann við að eitthvað gæti farið úrskeiðis, aldrei var hlustað. Þannig að sjálfstæðisflokkurinn réð partíinu ásamt samstarfsflokknum. En allavega í þessari sögu þá er gestgjafinn sjálfstæðisflokkurinn. En við getum ímyndað okkur að partíið var haldið heima hjá samstarfsflokknum. Fyrstu fjögur árin var partíið haldið heima hjá Alþýðuflokknum. Nú næstu níu ár ákvað gestgjafinn að færa partíið heims til Framsóknar.(sjálfstæðisflokkurinn var enn gestgjafi) En í þetta skiptið var ákveðið að nú skildu bara fáir fá að njóta ágóðans af veitingunum sem voru í boði í partíinu. Það var ákveðið folk valið úr sem að fékk veitingarnar á silfufati, og mátti gera hvað sem það vildi við veitingarnar(auðlindirnar,bankana og fleira) Enn var samt sjálfstæðisflokkurinn gestgjafi í partíinu. Fólkinu sem var boðið í partíið vissi að hápunktinum væri ekki alveg náð því að við getum ímyndað okkur að á þessum tímapunkti(fyrsta ársfjórðungi ársins 2004) í átján ára valdatíð flokksins, sé klukkan svona eitt eftir miðnætti á laugardagskvöldinu ef við höfum náð að pressa tímalínuna eins og ég gat um í byrjun pistilsins.

Aftur að partíinu sjálfu. Munið að gesgjafinn var búinn að velja örfáa sem að fengu veitingarnar á silfurfati(við getum kallað þá útrásarvíkinga) og máttu ráða hvað þeir gerðu við þær. En þó undir nokkru eftirliti gestgjafans. En gestgjafinn var svo upptekinn að láta gestina vita að þeir væru þeir eins sem gætu haldið svona svakalegt partí að eftirlitið brást heldur betur á útrásarvíkingunum. Á meðan nefnilega þá fóru útrásarvíkingarnir í annað partí sem var með miklu fleiri, betri og stærri veitingar.

Nú á meðan útrásarvíkingarnir voru að baða sig í ljósi frægðar og frama í hinu partíinu, þá ákvað sjálfstæðisflokkurinn að skipta um gestgjafa, allavega svona að nafninu til . það var ákveðið að skipta. Partiið flutt heim til sjálfsstæðisflokksins og framsókn gestgjafi…… En eins og áður sagði þá var þetta bara að nafninu til. Á þessum tímapunkti er partíið að ná hápunkti. Flestir gátu fengið allar þær veitingar sem þeir vildu. En þeir þurftu eðlilega að borga fyrir það. Þeir sem ekki áttu pening gátu fengið lán á rosalega góðum kjörum, því að útrásarvíkingarnir komu með pening út hinu partíinu, en fólk vissi ekki að til að útrásarvíkingarnir þurftu að veðsetja húsið þar sem fyrsta partíið var haldið til að geta fengið svona góð kjör…….. En fólki var alveg sama. Því á þessari stundu leit út fyrir að partíið mundi aldrei enda og engin mundi fá timburmenn.(en trúið mér, það átti eftir að breytast.) Nánast á sama tímapunkti í sögunni. Þá skiptu þeir aftur á milli sín gestgjafahlutverkinu. En þó bara mjög stutt núna.

En aftur kom að því að folk fékk að velja sér gestgjafa. Enn og aftur var gengið til kosninga…… Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að gefa framsókn uppá bátinn þar sem þeir höfðu klúðrað sínum málum(ímyndið ykkur gestgjafann sem verðu of fullur og þarf að fara inní herbergi að sofa úr sér).

Samfylkingin varð fyrir valinu. Þeir vildu færa partíið á stærri stall ESB…………. Hlutirnir mundu bara batna við að fara þangð inn………….En við komum ekki að því hér.

Núna fer að færast fjör í leikinn. Hápunkturinn í Partíinu!!!!!! Tímalínan er kominn að október 2007. Allir að njóta veislunnar eins og menn gátu. Þarna leit út að partíið mundi bara ekkert enda……………. En viti menn, nú er að renna upp sunnudagsmorgun. Fólk er að týnast úr partíinu því að menn gátu allt í einu ekki fengið lánað lengur hjá útrásarvíkingunum. Þeir vissu alveg af því sko, gestgjafinn vissi það líka, en það mátti bara engin vita. En partíið tók enda á sunnudagshádegi og eðlilega fór folk að sofa úr sér allar veigarnar sem stóðu til boða í partíinu. Nú svo þegar folk vaknar aftur, þá upplifir það eina þá mestu þynnku sem menn geta ímyndað sér. Með dúndrandi hausverk þá fattar folk að það þarf að fara að borga lánin sem menn fengu í partíinu og ekki nóg með það þá þarf að borga þau,,,,,,,,,, tvöfalt sumir þrefalt og aðrir jafnvel fjórfalt til baka. Æ Æ það var engin sem sagði fólkinu það í partíinu.

Nú samfylkingin er ekki eins þunn og sjálfstæðisflokkurinn enda hafði hún bara verið í partíínu í nokkrar mínútur meðan að sjálfstæðisflokkurinn hafði verið frá föstudagskvöldi.

Fókið sem var í partíinu var ekki sátt við sjálfstæðisflokkinn, sérstaklega ekki þar sem þeir höfðu borið í þá veigar allt partíið, gleymt að segja fólki að það þyrfti að borga. Fólkið vildi nýjan gestgjafa, Sjálfstæðisflokkurinn skildi ekki að hann hafi gert eitthvað vitlaust. En allavega þá ákvað samfylkingin að taka völdin og gerast gestgjafi ásamt vinstri grænum.

En þeir höfðu mjög stuttan tíma til að ná þynnkuni úr fólki. Fólk sem hafði mætt í partíið og skemmt sér manna best vildi ná úr sér þynnkunni STRAX. Því leið illa svona. Nú þessir gestgjafar reyndu sitt besta til að bjarga sem flestum á sem stystum tíma, en ákváðu þau í upphafi að folk fengi að velja sér nýjan gestgjafa innan skamms.

Nú fólki fannst það ekki ná úr sér þynnkunni nógu fljótt og fór að verða aftur pirrað. Gamli gestgjafinn(sjálfstæðisflokkurinn) ákvað að blanda sér í þá baráttu aftur með því að finna allt að nýja gestgjafanum.

Þeir ætla sér að verða gestgjafi aftur. Þeir gera sér ekki grein fyrir að folk er ennþá þunnt eftir gamla partíið og fæstir treysta sér til að mæta. Þó eru alltaf nokkrir sem standa við bakið á sínum mönnum og trúa því innst inni að partíið geti haldið áfram. Gleyma því jafnframt að gamli gestgjafinn ákvað að taka við smá pening frá útrásravíkingunum, Þeir vildu líka innst inni að partíið myndi ekki enda og ákváðu að reyna að gogga smápening að gestgjafanunm til að sjá hvernig hann myndi bregðast við.

Það er aðeins einn af þessum þremur gstgjöfum sem hefur komið hreint fram og sagt að allir þurfi að borga til baka því sem nokkrir eyddu í partíinu. Ekki sanngjarnt en það er nú staðreyndin.

Þetta er eins og ég sé þetta dæmi allt fyrir mér eins og er. Spurning hvort að maður hafi komið þessu frá sér þannig að allir sjái þetta eins og ég er að reyna að láta folk sjá þetta.

Gunnar Bjarnason


Sparka í liggjandi mann........ er það nú orðið löglegt?

Það er kannski erfitt að koma orðum að þessu en ég reyni. Tökum sem dæmi. Ef þú keyrir á 150 km/klst inní íbúðahverfi og keyrir á manneskju, hún deyr ekki en verður óvinnufær á eftir í tuttugu ár(Er það ekki tíminn sem við eigum að vera kominn útúr þessum fjármálakröggum).Löggan nær þér ekki en það eru vitni að þessu. Í framhaldi af því er ákveðið að fara tvær leiðir. Önnur leiðin er sú að þú rannsakir þig sjálfur, hin leiðin er sú að það komi óháður útlendingur og rannsaki málið. hvor leiðin heldur þú að mundi henta þér betur? Svo í ofanálag þá sektar þú manneskjuna sem Þú keyrðir á því að þú þarft að fá pening fyrir skaðanum sem þú ollir. Væri það sanngjarnt? Nei ekki að mínu mati

 Veit ekki hvort einhver annar sjái tenginuna milli þessarar stuttu dæmisögu og gjörða alþingis.

 lesið þetta aftur og spáið í þetta. Kannski er þetta eitthvað rugl hjá mér en mér finnst þetta "meika sens" svo maður sletti nú aðeins.

kv 

Gunnar B


mbl.is Þrýsta vísitölunni upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi

Fólki finnst það ekki vera mannréttindi þegar fólk er grýtt á torgum eða öðru slíku í miðausturlöndum, sem er kannski satt enda er finnst manni það gert af of litlu tilefni. En þegar maður les svona fréttir þá fer um mann sú reiðitilfinning að manni finnst að refsing í þeim flokki eiga við fólk sem gerir svona hluti.
mbl.is Nauðgaði dætrum sínum um árabil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

refsiaðgerðir Icelandair

fyrr má nú þakka þjóðum. Ekkert að því en á sama tíma og þeir "þakka" norðurlandaþjóðum þá refsa þeir hinum sauðsvarta íslenska almúga með því að hækka fargjöld fyrir þá sem þurfa að flýja land í nokkra daga.................. sanngjarnt?? það er spurning.
mbl.is Þakklætisvottur Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miriam Makeba látin

fyrir þá sem heyrðu ekki Heimir Karlsson í Ísland í bítið bera fram hennar fullt nafn þá getiði reynt að bera það fram sjálf, Þetta er semsagt hennar fullt nafn.

Zenzile Makeba Qgwashu Nguvama Yiketheli Nxgowa Bantana Balomzi Xa Ufun Ubajabulisa Ubaphekeli Mbiza Yotshwala Sithi Xa Saku Qgiba Ukutja Sithathe Izitsha Sizi Khabe Singama Lawu Singama Qgwashu Singama Nqamla Nqgithi.

Nafnið samanstendur af Nafni allra forfeðra hennar í karllegg. ásamt eins til tveggja orða útskýringu á nafni hvers manns.

 

ég segi nú bara..........það var rog.


mbl.is Miriam Makeba látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppþvottavélatöflur

já komiði nú sæl og blessuð.

Við skutuhjúin fórum í bónus áðan sem er kannski ekki frásögu færandi, nema fyrir það að við þurftum að kaupa töflur í uppþvottvélina. Og það var bara til finish classic XXL big pack. Ekki XL heldur XXL. Nú þar sem við áttum bara venjulega stærð heima fyrir ákvað ég að gera tilraun. Ég prófaði að setja töflurnar úr XXL pakkanum í venjulega pakkann. Og getiði hvað, kassinn sem var við venjulega stærð fylltist alveg sko en hann troðfylltist ekki............. langt því frá í sjálfum sér. nú spyr maður sig. Hvað eru þessir snillingar að hugsa með að selja XXL big pack þegar nánast eina sem er XXL er pakkningin ekki innihaldið............ þetta er magnaður andskoti finnst mér. 

 

kveðja

 

Gunnar B 


Blaðurmannafundur

Þetta fólk hefur atvinnu af að blaðra víst. Mér þætti mjög skondið ef að Geir mundi nú í allri kreppunni og depurðinni sem virðist vera að ryðja sér til rúms hjá íslendingum kalla til blaðamannafundar og tilkynna það að hann ætlaði að halda blaðamannafund!!! Hefur maðurinn kannski ekki haft tíma til að vinna útaf blaðamannafundum. Hvað veit maður? Kannski er þetta sick húmor hjá mér, en ef myndi  gerast þá mundi ég allavega glotta útí annað.

 

Gunnar B


mbl.is Blaðamannafundur hjá forsætisráðherra í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fu........ing Ripoff

segi ég og skrifa..........allaveg skrifa.

Keypti mér samloku og Kókglas á einhverri viðbjóðssjoppuni í dag. Það er dálitið gaman að segja frá því hvað þessi samloka og kókglas kostaði mig í dag og hvað hún hefði kostað mig á föstudaginn, líka þegar ég var hérna í Júní, og janfvel líka þegar ég var hérna í Mars. Byrjum nú á deginum í dag.

Samlokan og kókið kostuðu semsagt 8.95USD(mér datt ekki í hug að borga tips fyrir svoan vibba)

í dag 8 Október kostaði þetta.............................1490.822085 IKR 

hefði ég keypt þetta á föstudaginn....................1063.10785 IKR

hefði ég t.d. farið þann 12 júní(ég var hérna þá).........707.09117IKR

og síðast enn ekki síst hefði ég farið 12 mars(ég var líka hérna þá........625,21299IKR.

Samlokan er semsagt 238%Ca dýrari í dag heldur en hún var þann 12 mars sl. Sem betur fer fyrir kanana eru þeir ekki með íslenskar krónur. Og fyrir þá hina skörðu þarna úti sem eru að hlusta þá gildir sama um alla hluti.

 

kveðja úr ameríkunni 

Gunnar Bjarnason 


Kortagengið

hljómar eins og teiknimyndatitill.

 Það er eins og með allt annað. Það nýta allir sér fall krónunar. Visa og Mastercard gátu náttúrulega ekki annað en keypt gjaldmiðla á allra versta tíma svo að kortanotendur mundu alveg örugglega tapa eins miklu og hægt er í sínum viðskiptum.

 bara svona hugleiðing


mbl.is Evran dýr hjá kortafyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gunnar Bjarnason

Höfundur

Gunnar Bjarnason
Gunnar Bjarnason
Engin Svakakall en hef gaman af skemmtilegum hlutum(hver hefur ekki gaman af skemmtilegum hlutum)

Færsluflokkar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grænmeti
  • Grænmeti
  • 2016-07-24 14.32.25
  • 2016-07-24 14.32.25
  • 2014-10-15 19.01.50

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 38366

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband