18.2.2013 | 20:08
Blaut frönsk súkkulaðikaka.
Ef maður hugsar um eitthvað franskt og blautt þá er bara eitt sem kemur uppí hugann, súkkulaðikaka. Þessi sem hér um ræðir er guðdómleg. Það er bara þannig.
Þessa hefur konan eldað nokkrum sinnum, þegar ég kom að henni þá voru um 15 mínútur eftir af eldunartímanum og ég þurfti að sjá um rest, það tókst svona líka svakalega vel og útkoman var eins og áður sagði, guðdómleg.
Kakan.
300 gr suðusúkkulaði
200 gr smjör
4 egg
2 dl flórsykur
1 1/2 dl hveiti
1/2 tsk lyftiduft
örlítið af salti.
Aðferð.
Bræðið saman súkkulaði og smjör við lágan hita. Þeytið saman egg og flórsykur þar til blandan verður ljós og létt, hrærið súkkulaðiblöndunni varlega saman við og þar næst þurrefnunum. Við bökum í sílicon formi. Bakið í 30 mín við 180°C við yfir og undirhita án blásturs. Leyfið svo að kólna aðeins og setjið svo á disk.
Kremið
200 gr suðusúkkulaði
70 gr smjör
2 msk sýróp
Bræðið saman við lágan hita, hellið yfir kökuna og dreifið jafnt og fallega. Þegar kremið hefur kólnað er flórsykri stráð yfir í gegnum sigti, gott er að slá létt á hliðarnar á sigtinu meðan á dreifingunni stendur. Eins og áður sagði þá er þetta guðdómlegt. :-)
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Um bloggið
Gunnar Bjarnason
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.