Súkkulaðikaka eða kaka í potti.

Ég held ég byrji allar Bökunarfærslur á því sama. Hún Helena mín hefur séð um baksturinn á þessu heimili. Hún heldur því áfram í þessari færslu og stendur sig alltaf eins og hetja.

Ein vinsælasta kakan á þessu heimili ásamt marengskökunni, sem við komum að síðar, er kaka í potti eins og hún kallar, ástæðan fyrir þessari köku er sú að hérna í Tyrklandi búum við ekki svo vel að eiga hrærivél og þessi hentar vel í svona hrærivélalausan bakstur.  þessi er alveg yndislega fáránlega góð súkkulaðikaka.

Innihald 

130 gr mjólkursúkkulaði

130 gr dökkt súkkulaði

180 gr smjör 

 2 tsk neskaffi, þetta fer svolítið eftir stemmningunni hverju sinni. Stundum meira kaffi, stundum minna. Stundum ekki neitt. 

2 dl Sykur

4 Egg

2 tsk vanillu sykur

1/2 tsk lyftiduft

1/2 Dl. hveiti.

Aðferð 

Ofninn er hitaður í 175°C. 24 cm bökunarform er smurt að innan með smjöri og bökunarpappír er settur í botninn.  Súkkulaðið er brotið niður, brætt við vægan hita ásamt smjörinu og hrært í að meðan með písk. Potturinn er tekin af hellunni og látið kólna í smá stund. Á meðan e rneskaffið mulið í morteli mjög smátt og bætt útí pottinn ásamt sykrinum og eggjunum. Þetta er hrært vel saman með písk þar til blandan er orðin slétt. 

Hveiti, Vanillusykri og lyftidufti er blandað saman og sigtað ofaní pottinn, aftur er þetta pískað saman þangað til að blandan er orðin slétt. 

Deiginu er hellt ofaní bökunarformið og bakað í ca. 45-50 mínútur eða þangað til að það hættir að heyrst "bubbluhljóð" þegar maður leggur kökuna uppað eyranu, án þess að brenna sig þó Grin en muna að fylgjast með vel kökunni þar sem hún má vera blaut í miðjunni.  

Kremið.

70 gr dökkt súkkulaði.

70 gr mjólkursúkkulaði.

1 msk smjör

1 msk mjólk.

þetta er brætt og  hrært vel saman þar til það er búið að ná réttri þykkt á kremið, stundum meiri mjólk eða minni, allt fer eftir hvað maður vill hafa kremið þykkt. það má setja á kökuna þótt hún sé ennþá heit.  

Ef svo ólíklega vill til að það sé eitthvað eftir af kökunni þá er hún alveg virkilega góð "daginn eftir" kaka.  


2014-09-21 09.53.37

 


Kjúklingur Tikka Masala

Það rann upp enn einn dagurinn þar sem við höfðum kjúkling. Að þessu sinni ákváðum við að halda austur fyrir alla leið til Indlands(er ekki Tikka Masala Indverskt?) Skiptir kannski ekki öllu. Kjúklingurinn var að eigin sögn með Tyrkneskt vegabréf og þar við situr. 

Ég fann uppskrift inná ljufmeti.com þar sem viðkomandi hafði eldað eftir uppskrift frá Jamie Oliver, sem hafði örugglega fengið hana hjá einhverjum öðrum o.s.frv. Smile Þar sem við gátum ekki nálgast hluta af hráefninu þá var þetta sniðið að okkar Tyrknesku þörfum. 

Engu að síður þá er innihaldið sem ég notaði eftirfarandi.

4 hvítlauksrif

ca 5 cm engifer, engiferið var frekar þykkt, en magnið var gott, Ef engiferið er mjórra þá lengri bút ef þykkara þá styttri bút.

1 grænt chilli, fræhreinsað

1 msk sinnepsduft(grounded mustard)

1 msk paprikuduft

2 tsk Kúmen

2 tsk kóriander

3 msk garam masala

200 gr jógúrt

4 kjúklingabringur, skornar í grófa bita

1 msk smjör

2 miðlungs laukar, afhýddir og skornir í fínar sneiðar

2 msk tómat purée

lítið handfylli af fínmöluðum cashew hnétum

sjávarsalt

200 ml rjómi

safi af 2 lime

Engiferið og hvítlaukurinn eru rifin á fínu rifjárni og sett í skál. Chilli-ið er skorið mjög fínt niður og bætt útí ásamt Sinnepsduftinu, kúmeni, Kóríander og 2 msk af garam masala. helmingnum af blöndunni er sett í aðra skál ásamt kjúklingnum og jógúrtinu. Þessu er hrært vel saman og látið standa í 30 mín eða lengur, það verður ekki verra fyrir vikið. 

Smjörið er brætt á pönnu og laukurinn steiktur, restinni af kryddblöndunni er bætt á pönnuna og þessu leyft að malla í ca 15 mínútur við vægan hita.

Tómat puré, hnetunum, ca. hálfum lítra af vatni ásamt salti er bætt útá pönnuna, þessu er hrært saman og látið malla við vægan hita í nokkrar mínútur. 

 Þar sem við eigum ekki grill þá byrjaði ég á að steikja nokkra bita, það var ekki að gera sig þar sem pannan er ekki alveg að höndla mikið marinerað hráefni. Ég mæli með að fólk reyni að grilla kjúklingabitana. Ég steikti þá í ofni sem var alls ekki slæmt í sjálfum sér en eins og ég segi þá mæli ég með að grilla þá við háan hita.

Sósan er hituð aftur og rjómanm og restinni af garam masala bætt útí, sósan er smökkuð til með kryddum ef fólk vill meira eða minna af einhverju kryddinu.. þegar suðan er kominn upp þá er slöökt undir og kjúklingnum og lime safanum bætt útí og hrært varlega saman.

Við bárum þetta fram með hrísgrjónum. Naan brauð væri ákjósanlegt en við notuðum hvítt brauð sem er alls ekki slæmt.

 þetta var helv...... gott.

 

2014-09-19 19.58.41

 


Appelsínu marmelaði

Hún Helena mín, eins og áður hefur komið fram, sér um baksturinn á þessu heimili. Um daginn gerði hún Appelsínu marmelaði sem bragðaðist æðislega. 

þetta notar hún.

2 Appelsínur

Safi úr einni sítrónu

börkur af ca 1/4 sítrónu 

1 dl sykur

1 dl vatn.

Börkurinn(passa sig að hafa ekki hvíta hlutann með því þaðan kemur beiska bragðið) er tekin af báðum appelsínunum með meðal fínu rifjárni og settur til hliðar. U.þ.b  1/4 af Sítrónu berkinum er rifinn með sama rifjárni og settur til hliðar(sama regla og með appelsínubörkinn). 

Appelsínurnar eru afhýddar og hver bátur skorinn í tvennt.  Sett i pott ásamt börknum af annari appelsínunni, safanum, berkinum af sítrónunni og vatninu. Þetta er látið malla við lágan til meðalhita í ca 10 mín eftir að suðan er kominn upp og hrært í á meðan. 

Þetta er sett í matvinnsluvél og maukað saman þar til þetta er orðið að "fallegu" mauki.

þetta er sett aftur í pott og restin af berkinum ásamt sykrinum  blandað við og hrært saman í ca 5-7 mín eftir að suðan er kominn upp og hrært í á meðan. 

Í lokin er þetta sett í hreina krukku og leyft að kólna við stofuhita og kælt að því loknu.

 

Þetta er frábært marmelaði, tekur stuttan tíma að gera og passar í eina krukku.

2014-09-17 19.46.36

 


Kjúklingur í kókosmjólk og Ananas safa(daginn eftir)

Oft er það nú þannig í þessum heimi að fólk, við meðtalin, veit ekki alltaf hvað það á að gera við þessa svokölluðu afganga. það er synd að henda mat og af því er alltof mikið gert. ALLTOF MIKIÐ, já heyriði það. 

Þennan rétt vorum við með um daginn

http://gunnarbjarnason.blog.is/blog/gunnarbjarnason/entry/1445595/

 Þar sem það var nóg eftir í aðra máltið þá tók rétturinn á sig töluvert aðra mynd og er kannski ósanngjarnt að kalla hann sama nafni. þar til annað og betra nafn er fundið þá heldur hann þessu nafni. þ.e Kjúklingur í kókosmjólk og ananas safa(daginn eftir). 

Það sem við gerðum var að blanda saman hrísgrjónunum og kjúklingaréttinun í einn pott. 

bætt við rjóma(ca 200 ml, fer eftir magni af afgöngum), salti og pipar, kjúklingakrafti til að rífa upp bragðið þar sem hrísgrjónin stela svolítið af bragðinu af sósunni. þetta er hitað þar til að þetta er orðið að mjúkri og fínni grýtu. 

Að þessu sinni var þetta borið fram með ristuðu brauði og bragðaðist svona fantavel.  

2014-09-16 19.10.45 

 

 

 


Kjúklingur í kókosmjólk og ananas safa.

Hérna í Istanbúl er ekkert ofgnótt af svínakjöti, lambakjötið er ekki gott þannig að megnið af færslum, reyni að vera duglegur, verður eitthvað um kjúkling og nautakjöt.

Við notuðum, að mig minnir, ananas í pottrétt um daginn í fyrsta skipti og bragðaðist hann svona líka vel.

Innihald.

2 kjúkingabringur, skornar í litla bita.

1 paprika, skorin í strimla.

½ laukur skorin niður.

Ca 5 niðurskornir sveppir.

1 Gulrót niðurskorin.

1 dós kókosmjólk

½ dós ananas niðurskorin.

Safinn úr anansdósinni.

1-2 tengingar Kjúklingakraftur

Byrjað er á að skera allt hráefnið niður, segir sig kannski sjálft en einhvern veginn þarf að byrja leiðbeiningarnar J  Kjúklingurinn er steiktur þar til hann er næstum tilbúin(hann er svo kláraður í potti með sósunni), saltaður og pipraður eftir smekk. Svo má bæta við chilli ef fólk vill hafa þetta betur kryddað, ég ákvað ekki að gera það að þessu sinni.

Grænmetið er steikt í potti þar til það er orðið mjúkt, saltað, piprað eftir smekk.

Kókosmjólkinni og ananassafanum er bætt útíþ þetta er látið sjóða upp, ég er ekki feiminn við að nota kjötkraft  en vona að ég vaxi nú uppúr því einhver tímann. Kjúklingakraftinum er semsagt bætt útí pottinn og kjúklingurinn settur útí. Þessu er leyft að sjóða saman þar til kjúklingurinn er tilbúinn. Ef þarf þá er þetta saltað og piprað eftir smekk, jafnvel bætt við kjúklingakrafti ef þörf er talin á.

Rétt áður en rétturinn er borinn fram þá er ananasbitunum bætt útí.

Þetta borðuðum við, eins og svo oft áður með hrísgrjónum.

Einfalt og alveg þrælgott.

2014-09-16 14.49.22 


Kjúklingaréttur

Eftir langt og strangt blogg"bann" þá er mig farið að langa til að blogga aftur. Er búinn að lofa sjálfum mér að vera duglegum og ætla að reyna að standa við það. Fólk má samt ekki halda að við höfum ekkert borðað í hálft annað ár. því fer fjarri. Smile Allavega þá vorum við með þennan dýrindis kjúklingarétt í gær.

Innihald.

3 kjúklingabringur. skornar í litla bita.

1 meðastór paprika. skorin í strimla.

1 Kúrbítur skorinn í strimla.

1 Brokkolí haus. Brokkolíið skorið í þægilega stærð.

1/2 laukur skorin niður.

1 hvítlauksrif skorið smátt.

ca 10 meðalstórir sveppir.

1 gulrót skorin í strimla.

Teriyaki sósa

salt, pipar og Chilliduft(átti ekki ferskt chilli) 

Ég byrjaði á því að sjóða brokkolíið í ca 3 mín og lét það standa í smá stund í pottinum eftir að slökkt var undir.

Fyrst er kjúklingurinn steiktur á pönnu þar til hann er næstum tilbúin, saltaður, pipraður og örlítið að chilli dreift yfir, magn fer eftir smekk á styrkleika. Í lokin er svo ca. 1-2 matkeiðum af teriyaki sósu hellt yfir og leyft að sjóða örlítið niður. Kjuklinigurinn er settur til hliðar og grænmetið steikt í framhaldi á sömu pönnu. Í þetta skiptið vildi ég ekki steikja það of mikið þar sem ég vilda hafa það líka smá stökkt. þetta er allt saltað, piprað, "chilliað" og svo helli ég smá Teriyaki, eða jafnvel soya yfir. svo í lokin set ég brokkolíið og kjuklinginn útí og leyfi kjúklingnum að klárast, núna setii ég örlitla rönd af sweet chilli sacue yfir, en það er frjálst val eins og allt annað, ásamt þessu þá set ég fet ost yfir og þegar hann er að mestu bráðin þá er hægt að bera þetta fram. Þar sem elsta dóttirin var svo svöng þá fékk hún að borða meðlætið sem ég hafði hugsað með þannig að þetta var borið fram með hrísgrjónum., sem er alls ekki slæmt.  

 

2014-09-13 19.19.21

 


Um bloggið

Gunnar Bjarnason

Höfundur

Gunnar Bjarnason
Gunnar Bjarnason
Engin Svakakall en hef gaman af skemmtilegum hlutum(hver hefur ekki gaman af skemmtilegum hlutum)

Færsluflokkar

Bloggvinir

Sept. 2014
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grænmeti
  • Grænmeti
  • 2016-07-24 14.32.25
  • 2016-07-24 14.32.25
  • 2014-10-15 19.01.50

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 39224

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband